29janúar

Eurovision!

Veit ekki hvort nokkur kíkir lengur hérna inn þar sem að mín er nú ekki dugleg við að uppfæra.

Bara rétt að minna á laugardaginn 3. feb, þá er um að gera að stilla á Ríkissjónvarpið og horfa á undankeppni Eurovision :o)

http://www.ruv.is/heim/vefir/eurovision/3/

-Take care!

29. janúar 2007 klukkan 20:14
Erna Hrönn Ólafsdóttir
12 athugasemdir
16nóvember

Stöndum saman...

Er ekki spurning um að leggja sitt af mörkum...?

http://globalorgasm.org/
16. nóvember 2006 klukkan 19:47
Erna Hrönn Ólafsdóttir
4 athugasemdir
26október

Guess who...

Jæja, komin tími til að virkja bloggið.

Síðustu tvær vikur nær eingöngu farið í skólann og barnauppeldið, klikkað að gera í skólanum og ég er stanslaust með svipuna á bakinu á mér að reyna að koma mér í gegnum önnina. Ánægjulegt að vita að ekki eru nema tveir mánuðir í jólin (56 dagar ef við erum nákvæm) og ég sá fyrstu snjókornin í morgun, reyndar í formi slyddu, en snjór er alltaf snjór ekki satt??

Var líka himinlifandi þegar ég komst að því að Damien Rice gefur út nýja plötu sjötta dag næsta mánaðar. Hlakka mikið til að heyra útkomuna!!

Helgi á morgun... alveg merkilegt hvað vikurnar hverfa hratt. Planið ekki fullmótað en tvö afmælisboð á planinu og hver veit nema maður kíki á Hellu á Oktoberfest annaðkvöld. Bekkjarkeila, Stællinn og Pravda í kvöld og ekki ólíklegt að ég plati liðið á Viktor þegar líður á :o)

Jæja kjútíbollur, farin að hlusta á Sólina mína syngja!

-Erna Hrönn

26. október 2006 klukkan 20:23
Erna Hrönn Ólafsdóttir
6 athugasemdir
10október

...Mér finnst ég vera ađ drukkna...

Skóli skóli skóli....

Kemst ekkert annað að þessa dagana. Er að vinna í þremur ritgerðum (þar af tveimur í hópvinnu), einu verkefni og svo er próf á fimmtudaginn. Er að reyna að taka þetta á þrjóskunni því ég get ekki sagt að áhuginn sé súpermikill.

Verð því líklegast ekki dugleg að blogga á næstunni, ekki bætir úr að netið virkar ekki heima. 

Er ekki einhver til í að gefa mér smá jákvæðnis og uppörvunarstrauma??
Give me some love people, I sure need it!!

-Örní
semerekkialvegaðgetameiriskólaþessadagana
10. október 2006 klukkan 19:28
Erna Hrönn Ólafsdóttir
7 athugasemdir
28september

Kćri herra forseti...

Þið verðið að hlusta á þetta lag. Mér finnst það mjög flott og textinn áhrifamikill. Gefur mér allavega gæsara í hvert skipti sem ég heyri það.

Pink- Ég elska þig...

http://www.youtube.com/watch?v=9eDJ3cuXKV4

28. september 2006 klukkan 20:19
Erna Hrönn Ólafsdóttir
6 athugasemdir
27september

Hvar er Mjallhvítin mín??

Einu sinni var Mjallhvítarsagan mun saklausari...

http://www.collegehumor.com/video:1710234


ýta á samþykkja-aldur takkann ef þið eruð nógu gömul til að kíkja!
27. september 2006 klukkan 05:14
Erna Hrönn Ólafsdóttir
6 athugasemdir
26september

Litlu hlutirnir...

Mér brá heldur betur í kvöld þegar ég var í þann mund að tannbursta Mána Stein.  Hann horfði á mig með stóru brúnu augunum sínum og byrjaði að telja á ensku. Hann taldi upp á tólf án þess að hika og þuldi svo í framhaldi upp vikudagana á sama tungumáli.
Hann var svo stoltur af að geta þetta, sagðist bara hafa hlustað á kennarann og hermt eftir og ég sver að hjartað mitt ætlaði að springa úr gleði. Litli fimm ára engillinn minn ljómaði svo fallega.

Þvílík forréttindi...

26. september 2006 klukkan 03:41
Erna Hrönn Ólafsdóttir
4 athugasemdir
25september

Haustiđ...

...Er skollið á

Það væri synd að segja að ég hafi setið sveitt yfir bloggfærsluskrifum síðustu vikur en nú, tveimur mánuðum og einni bloggfærslu síðan ég lofaði að bæta ástandið, er aldeilis komin tími á mig. Ég hugsa að það sé sniðugt að fara að ráðum námstæknikennara og byrja á því sem hefur verið að gerast upp á síðkastið og vinna svo upp glataðan tíma.

Litla fjölskyldan
Krílin tóku miklum breytingum í sumar, hafa bæði stækkað mjög mikið og þroskast í hugsun og tali.
Silja Sól er algjört krútt þegar hún talar, orðaforðinn hefur stækkað mjög mikið en hún á erfitt með að segja -r og setur -l eða -ð í staðinn og það sem kemur upp úr henni er mjög oft fyndið að hlusta á:  "Þa va mjö undalett sem geððist, slínlsið kom o va að hlæða mi og mé baða blá."  "Neeei mamma ekki slass, é hlusta á slumpana!" Hún hefur svosem ekki langt að sækja það þar sem mamma hennar átti við svipað vandamál að stríða á sínum yngri árum og sagði m.a sklaufa og garlanorn lengi vel.
Já litla prinsessan mín hefur ekki aðeins breyst í tali heldur er að verða algjör skvísa, komin með hár niður á mitt bak og það eru vægast sagt átök á morgnana þegar ég er að reyna að greiða í gegnum lubbann hennar.

Máni Steinn varð fimm ára fyrir mánuði síðan og byrjaði í fimm ára bekk í Ísaksskóla um síðustu mánaðarmót. Verð að viðurkenna að tilfinningin að senda barnið sitt í skóla er ansi skrýtin. Í sumar var ég mjög spennt fyrir skólagöngunni en fyrstu skóladagana leið mér hreinlega eins og hann væri að fara að heiman, hann varð allt í einu svo fullorðinn strákurinn. En honum gengur mjög vel og ég veit að þetta gerir honum bara gott. Bæði er aginn góður og svo fær hann tækifæri til að reyna aðeins á sig í skemmtilegum verkefnum sem fara að mestu leyti fram í gegnum leik. Hann er líka í danskennslu, tónmennt og leikfimi sem honum finnst ansi spennandi. 
Það fyndna við þeta alltsaman er að ég er strax farin að finna fyrir smávegis gaur í honum. Hann spurði mig um daginn hvaða dagur væri á morgun og þegar ég svaraði fékk ég tilbaka " ohh mamma ég vissi það alveg, ég lærði það í skólanum mínum -þú þurftir sko ekkert að segja mér það".
Það er sem sagt margt nýtt að uppgötvast og lærast hjá litlum krílum um þessar mundir og ég hef ekkert smá gaman af því!!

Mitt líf er ansi þéttskipað eins og það hefur verið síðustu annir, en það sem breyttist í haust var að ég skráði mig í uppeldis- og menntunarfræði til 30 eininga á móti 60 einingunum í táknmálinu sem ég er búin að klára. Mér líst mjög vel á námið þó það verði ansi mikið að gera og ég sé fram á að þurfa að leggja mig 150% fram við að halda mig við lesturinn ef ég á að komast yfir allt námsefnið. Er að taka átján einingar í haust sem ég ætla mér að klára og vonast til að komast langt á þrjóskunni.
Bermuda er á kafi í upptökum á nýju lagi þessa dagana og verður smellurinn vonandi klár eftir rúma viku (skv. björtustu vonum). Erum líka að leggja lokahönd á "tónleikaprógram" sem við auglýsum í október.

Annars er ekki mikið um breytingar; bý ennþá á Eggertsgötunni, keyri um á biluðum renault og er ekki búin að finna mér lífsförunaut. Hef formlega lokið leitinni um óákveðinn tíma, við krílin höfum nú spjarað okkur ágætlega hingað til og ætlum okkur að halda því áfram.

Fjórir og hálfur í ræs. Ég er skriðin í háttinn, afar stolt af afrakstri næturinnar.

-Nattinatt... 

25. september 2006 klukkan 07:39
Erna Hrönn Ólafsdóttir
10 athugasemdir
26júlí

Myndir og könnun...

Æ ég veit það gengur ekkert alltof vel að pikka inn hugsanir en ég afrekaði þó að smella saman könnun, þar sem mig langar að vita hvert straumurinn liggur um versló, og búa mér til myndasíðu. Ég á reyndar ekki myndavél sjálf en er að setja inn nýlegar myndir af geisladiskum og ætla að reyna að vera dugleg að setja meira inn næstu daga.

Klukkan er margt og ég hef frá of mörgu að segja til að vita hvar ég á að byrja svo ég segi bara góða nótt í bili...

-Kissikiss
26. júlí 2006 klukkan 07:56
Erna Hrönn Ólafsdóttir
10 athugasemdir
20júlí

Vó-hó-hó

Eru í alvörunni TUTTUGU DAGAR síðan ég bloggaði...?!?

Ó mæ...Reyni að henda inn færslu í dag...
20. júlí 2006 klukkan 17:01
Erna Hrönn Ólafsdóttir
2 athugasemdir

Ađalvalmynd

Tenglar

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Leit